Skip Navigation Links
Fréttir
Vottun greiðslukerfaExpand Vottun greiðslukerfa
Gagnasafn og skjölExpand Gagnasafn og skjöl
SEPAExpand SEPA
JöfnunarkerfiðExpand Jöfnunarkerfið
Fjölgreiðslumiðlun hfExpand Fjölgreiðslumiðlun hf
Tenglar
Hafðu samband
 




Jöfnunarkerfið

Jöfnunarkerfi FGM (JK-kerfið) annast jöfnun uppsafnaðra greiðslufyrirmæla sem eru lægri en 10 m.kr. milli þátttakenda.[1] Jöfnunarkerfi er greiðslukerfi [2] sem tekur við beiðnum frá þátttakendum um framkvæmd fyrirmæla um greiðslur frá einum þátttakanda til annars innan kerfisins.

Greiðslujöfnun JK-kerfisins fer fram með þeim hætti að öllum greiðslum til og frá hverjum einstökum þátttakanda er safnað saman í lok dags og þá er reiknuð út jöfnunarstaða, þ.e. jákvæð eða neikvæð greiðslustaða. Greiðsluuppgjörið fer síðan fram á reikningum þátttakenda í Seðlabankanum.

Greiðslukerfið jafnar þannig  greiðslur, þ.e. umbreytir mörgum kröfum eða skuldbindingum í eina (nettó)kröfu eða (nettó)skuldbindingu um greiðslu eða greiðsluskyldu þátttakenda. Um leið og greiðslufyrirmæli eru framkvæmd er breyting á nettórauntímastöðu allra færslna milli einstakra þátttakenda (þ.e. jöfnunarstaða) skráð í teljara sem er aðgengilegur viðkomandi þátttakendum og Seðlabanka Íslands. Þátttakendur nota sérstaka jöfnunarreikninga á vegum FGM við stýringu jöfnunarstöðu milli einstakra mótþátttakenda. Hver þátttakandi hefur sérstakan jöfnunarreikning fyrir hvern mótþátttakanda. Mótþátttakendur geta lagt fé inn á viðkomandi jöfnunarreikning í því skyni að hækka hámarksjöfnunarstöðu tímabundið.

Rauntímajöfnunarstöður milli þátttakenda í kerfinu eru sýnilegar þannig að þeir geta fylgst með og stýrt áhættu vegna greiðslumiðlunarinnar. Viðskiptamenn þátttakendana í kerfinu hafa aðgang að peningum sem lagðir eru inn á reikninga þeirra um leið og innborganir fara fram enn þátttakendurnir ekki fyrr en kl 17.00 á bankadegi. Þátttakendur semja um gagnkvæmar heimildir vegna innbyrðis jöfnunarstöðu og leggja fram tryggingar fyrir uppgjöri á hæstu skuldastöðu. Þá geta þátttakendur lagt laust fé inn á jöfnunarreikninga sína til þess að mæta tímabundnu ójafnvægi í innbyrðis greiðslustöðu. Uppgjör fer fram á stórgreiðslureikningum þátttakenda í Seðlabankanum kl. 17.00 á bankadögum. Um starfsemi jöfnunarkerfisins gilda reglur Seðlabanka Íslands nr. 789/2003.

Forræði JK-kerfisins er hjá stjórn Fjölgreiðslumiðlunar hf (FGM), en Reiknistofa Bankanna  rekur kerfið og sinnir hugbúnaðarþjónustu fyrir hönd FGM, samkvæmt sérstökum samningi þar um. Reglur Seðlabanka Íslands um kerfið byggja á 10 kjarnareglum um kerfislega mikilvæg greiðslukerfi, sem njóta alþjóðlegrar viðurkenningar.[3] Reglurnar um starfsemi jöfnunarkerfa hafa verið tilkynntar til eftirlitsstofnunar EFTA og JK-kerfið þar með fengið viðurkenningu sem lögmætt greiðslukerfi hér á landi og á Evrópska efnahagssvæðinu. 

 


[1] Þátttakendur í jöfnunarkerfum geta verið stofnanir, sbr. 2. tl. 2. gr. laga um öryggi greiðslufyrirmæla í greiðslukerfum, nr. 90/1999 enda uppfylli þær að öðru leyti kröfur sem stjórn jöfnunarkerfisins gerir til þátttökunnar, sbr. 3. gr. Þátttakendur skulu hafa uppgjörsreikninga í Seðlabanka Íslands og vera jafnframt þátttakendur í stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands.

[2] Greiðslukerfi: Formlegt fyrirkomulag þriggja eða fleiri þátttakenda sem byggist á sameiginlegum reglum og stöðluðu fyrirkomulagi við framkvæmd greiðslufyrirmæla milli þeirra, enda hafi a.m.k. einn þátttakendanna aðalskrifstofu sína hér á landi, og greiðslukerfið fullnægir þeim kröfum sem gerðar eru og það hefur verið viðurkennt og tilkynnt í samræmi við lög nr. 90/1999 um öryggi greiðslufyrirmæla í greiðslukerfum


Innskráning

 

 
 

  

 

folk.png

Kort og PIN.
Ný heimasíða um kort og PIN hefur verið opnuð.

Allar upplýsingar varðandi Kort og PIN er að finna á vefsvæðinu www.kortogpin.is

almennt.jpg

Almennt

Bréf vegna öryggisstaðla VISA og MasterCard

Bréf voru send á alla söluaðila vegna öryggisstaðla Visa og MasterCard. Einnig voru send bréf á alla stærri söluaðila sem 
þarfnast frekari athugunar.Sjá nánar hér.

 

hradbanki.png

Almennt

Ný handbók um greiðslumiðlun á Íslandi

 

Ný handbók um greiðslumiðlun á Íslandi er komin inn á vefsvæði FGM. Hægt er að óska eftir aðgengi að síðunni með því að senda póst á fgm@fgm.is.

Fjölgreiðslumiðlun hf  -  Engjateig 3  -  105 Reykjavík  -  sími: 458-0000  -  fax: 458-0001  -  fgm@fgm.is