Úttektir og vottun greiðslukerfa
Fjölgreiðslumiðlun hf - FGM sér um úttektir og vottanir á kerfum sem taka við greiðslukortum hjá þeim söluaðilum sem eru með samstarfssamning fyrir rafrænar kortafærslur/seljendasamning við VALITOR og Borgun hf. Þetta á við um greiðslukortahugbúnað fyrir alla posa, kassakerfi, afgreiðslukerfi, sjálfsala, internetsíður eða önnur þau kerfi sem framkvæma rafrænar greiðslukortafærslur þegar viðskipti eiga sér stað eða með öðrum orðum þau kerfi sem tengjast RÁS-kerfinu.
Áður en nýtt kerfi eða ný uppfærsla af áður vottuðu kerfi er sett upp hjá söluaðila þarf kerfið að fara í gegnum úttekt hjá FGM. Að úttekt lokinni gefur FGM út yfirlýsingu um að frumúttekt sé lokið og heimilar fyrstu uppsetningu. Endanleg vottun kerfisins er svo gefin út þegar reynslutíma er lokið.
Þeir aðilar sem ætla að setja upp ný kerfi/útgáfu þurfa að sækja um úttekt á kerfinu og það er gert með því að fylla út beiðni hér. Panta þarf úttekt í tíma þar sem liðið gætu nokkrir dagar þ.t. FGM getur framkvæmt úttektina Einnig er ekki óalgengt að úttektina þurfi að gera oftar en einu sinni og því er nauðsynlegt að reikna með nægum tíma þegar uppsetningartími er áætlaður.
Á fyrstu árum rafræna greiðslumiðlunarkerfisins/ RÁS-kerfisins voru úttektir gerðar af Tæknideild RÁS sem var deild hjá Greiðslumiðlun hf - VISA Ísland. Í febrúar 2002 tók Frumherji við úttektum og sá um þær þar til 1. mars 2005 að þær komu til FGM.